Skráning á sumarnámskeið 2012 hefst 20. apríl

apríl 11, 2012

Skráning á sumarnámskeið 2012 hefst 20. apríl

Sumarnámskeiðin Minn styrkur verða haldin í sumar fyrir einstaklinga á einhverfurófinu á aldrinum 12-19 ára (fædd 1993-2000). Markmið námskeiðsins er að efla félagsfærni og uppgötva styrkleika þátttakenda með ýmiskonar fræðslu og vettvangsferðum. Námskeiðið er tvær vikur og hefst kl. 9 og stendur til kl. 16, nema lokadaginn, þá líkur námskeiðinu klukkan 13.00.

Allt að 14 unglingar verða á hverju námskeiði undir umsjá fjögurra leiðbeinenda og biðjum við foreldra að meta stuðningsþörf barnsins í samræmi við það, þ.e. við höfum einn leiðbeinanda á hverja 3-4 þátttakendur.

Þrjú námskeið verða haldin í sumar og stendur hvert námskeið í tvær vikur:

  1. námskeið 11.-22. júní.
  2. námskeið 25. júní – 6. júlí..
  3. námskeið 9. júlí – 20. júlí

Skráning:

Þátttökuskráning hefst föstudaginn 20. apríl og lýkur föstudaginn 11. maí. Mikilvægt er að skrá þátttakendur sem allra fyrst og biðjum við ykkur um að velja það námskeið sem hentar ykkur best en velja annað námskeið til vara. Þátttökugjald er 20.000 kr.-, sem er svipað og fimm daga námskeið í Húsdýragarðinum sem dæmi. Hádegismatur er innifalin, frístundakort gilda ekki.

Kynningarfundur um námskeiðin mun verða haldin 1-2 vikum áður en námskeiðin hefjast þar sem þátttakendum gefst kostur á að hitta leiðbeinendur og koma með spurningar. Nánari upplýsingar um efnistök er að finna hér á blogginu, hikið ekki við að setja inn athugasemdir hér fyrir neðan ef eitthvað er óljóst eða hringið í Guðrúnu s: 6628480 eða Sigrúnu s: 8972682

Umsjónarfélag einhverfra.


Opnað fyrir skráningu á sumarnámskeiðin Minn Styrkur

apríl 20, 2011

Kæru foreldrar og aðrir aðstandendur!

Skráning á sumarnámskeið Umsjónarfélags einhverfra hefst í dag, 20. apríl.  Smellið á “Skráning á sumarnámskeið 2011″ hér fyrir ofan.

Skráningin verður opin í tvær vikur, til 6. maí.  Við hvetjum ykkur til að skrá sem fyrst og tilgreina sem best það sem spurt er um í skráningarforminu.  Ef eitthvað er óljóst, þá skuluð þið senda tölvupóst á einhverf@vortex.is eða hringja i Sigrúnu í síma 8972682.

Kær kveðja,

Umsjónarfélag einhverfra.


Sumarnámskeið Umsjónarfélags einhverfra 2011

apríl 13, 2011

Sumarnámskeið fyrir unglinga:

Stefnt er að því að halda þrjú sumarnámskeið fyrir unglinga 12-18 ára í júní og júlí.  Verða þau með svipuðum hætti og í fyrrasumar, þ.e. tvær vikur hvert námskeið, haldin í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi.  Gert er ráð fyrir 12-14 einstaklingum á hverju námskeiði og 4 starfsmönnum. Er þetta samstarfsverkefni Soroptimistafélags Reykjavíkur og Umsjónarfélags einhverfra. Skráning á sumarnámskeiðin   hefst 20. apríl.  Námskeiðin verða 20.6-1.7, 4.7-16.7 og 18.7-29.7.  Námskeiðisgjald verður kr. 20.000,-

Skráningin verður opin til 6. maí.  Við hvetjum ykkur til að skrá sem fyrst eftir að skráning opnar og tilgreina sem best það sem spurt er um í skráningarforminu.  Ef eitthvað er óljóst, þá skuluð senda tölvupóst á netfangið einhverf@vortex.is eða hringja i Sigrúnu í síma 8972682.


Temple Grandin – Hugarstarfsemi einhverfra er heiminum nauðsynleg

apríl 23, 2010

Mikið svakalega er ég hrifin af henni Temple Grandin.  Þegar Temple greindist á einhverfurófinu sem barn á sjötta áratugnum, spurði mamma hennar hvað væri best að gera.  Svarið var: “Finna góða stofnun handa henni, hún mun aldrei læra að tala eða þroskast meira en orðið er.”  Hún hélt nú ekki.

Í dag er Dr. Temple Grandin eftirsóttur og vinsæll fyrirlesari og einnig höfundur fjölda bóka um líf einhverfra.  Ég rakst á þennan frábæra fyrirlestur hennar á TED-ráðstefnunni, sem er fræðandi, fyndinn og hjartnæmur.  Mér þykja kenningar hennar um hugarstarfsemi einhverfra sérstaklega áhugaverðar og þætti gaman að heyra álit annarra.

Grandin talar um að flestir á einhverfurófinu eigi það sameiginlegt að Read the rest of this entry »


Opnað fyrir skráningu á sumarnámskeiðin Minn Styrkur

apríl 14, 2010

Kæru foreldrar og aðrir aðstandendur!

Við erum tilbúin að taka við skráningu þátttakenda á námskeiðin!  Smellið á “Skráning á sumarnámskeið 2010″ hér fyrir ofan.

Skráningin verður opin í tvær vikur, til 28. apríl.  Við hvetjum ykkur til að skrá sem fyrst og tilgreina sem best það sem spurt er um í skráningarforminu.  Ef eitthvað er óljóst, þá skuluð þið endilega setja inn athugasemdir hérna á bloggið.

Kær kveðja,

Þekkingarhópurinn Minn Styrkur.


Þátttökuskráning hefst á morgun!

apríl 13, 2010

Opnað verður fyrir skráningu á sumarnámskeiðin á morgun, miðvikudag (tími liggur ekki nákvæmlega fyrir). Ef þú hefur áhuga, getur þú skráð í þig í áskrift að blogginu okkar hér til hægri og þá færðu póst þegar skráningin er tilbúin.

Kær kveðja,

Þekkingarhópurinn Minn Styrkur


Kynningarfundur í Sjónarhól um sumarúrræði fyrir börn og unglinga

mars 25, 2010

Í kvöld var haldinn opinn fræðuslufundur í Sjónarhól, um sumarúrræði fyrir börn og unglinga á einhverfurófinu.  Á fundinn komu fulltrúar frá eftirfarandi aðilum:

ÍTR – Katrín Þórdís Jacobsen
Hitt húsið – Jenný Magnúsdóttir
Vinnuskólinn í Reykjavík – Kolbrún Ingibjörg Jónsdóttir
Minn styrkur / Umsjónarfélag einhverfra – Helgi Þór Jónsson og Ása Rún Ingimarsdóttir
Þetta var fróðlegur og skemmtilegur fundur.  Varðandi verkefnið okkar, sumarnámskeið fyrir 12-18 ára unglinga, þá kom eftirfarandi fram:

Staðfest atriði varðandi námskeiðið

  • —3 námskeið sem standa í 2 vikur hvert, þ.e. 9 virkir dagar.
  • —Heilsdagsnámskeið (9-5?), hádegismatur innifalinn —
  • Sniðin fyrir
    • —Getumeiri einstaklinga á einhverfurófinu —
    • Aldur: 12-18 ára —(fædd 1992-1998)
    • Fjöldi:  Allt að 14 pr. námskeið
  • Staðfestar tímasetningar:
    1. Námskeið: 14. júní – 25. júní (Þjóðhátíðardagur Íslendinga 17. júní
    2. Námskeið: 29. júní –  9. júlí (Mánudagurinn 28. er starfsdagur leiðbeinenda)
    3. Námskeið: 13. júlí – 23. júlí (Mánudagurinn 12. er starfsdagur leiðbeinenda)

Ennþá óstaðfest:

  • —Húsnæði??? —  Þetta er brýnt mál, við óskum eftir ábendingum ykkar um hentugt húsnæði t.d. grunnskóla.
  • Verð: 20.000
  • Stuttmyndagerð —?
  • Næturgisting í Alviðru (1 nótt,seinni fimmtudaginn) —?
  • Matarboð fyrir foreldra?

Sjá einnig glærurnar okkar af fundinum:  Minn Styrkur – Sumarúrræði UE 25.03.10

Við munum auglýsa skráningardag um leið og það liggur fyrir, vonandi sem fyrst:)


Velheppnaður kynningardagur í Bratta

febrúar 9, 2010

Föstudaginn 5. febrúar var haldin kynningardagur í salnum Bratta í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð.   Fjallað var um samstarf Umsjónarfélags einhverfra og nemenda í þroskaþjálfadeild H.Í. við þróun sumarnámskeiða og uppbyggingu þekkingarsafns.

Dagskrá var á þann veg, að í hádeginu voru þrjár kynningar og umræður.   Eftir hádegi var heimildarmyndin Sólskinsdrengurinn sýnd, sem var viðeigandi því myndin var kveikjan að verkefinun.  Soroptimistaklúbb Reykjavíkur er bakhjarl verkefnisins.  Verkefnið hlaut einnig styrk frá Forvarnar- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar.

Tilgangur með verkefninu er að skapa nýtt úrræði fyrir unglinga á einhverfurófinu í formi sumarnámskeiða.  Þar verður leitast við að uppgötva styrkleika þeirra með ýmis konar fræðslu og skemmtilegum vettvangsferðum.  Gert er ráð fyrir að hvert námskeið standi í 2 vikur og á hverju námskeiði verði 12-14 þátttakendur.

Sjá nánar um aðdraganda verkefnisins og hugmyndir í þróun í eftirfarandi glærum:

Minn Styrkur – Hugmynd að sumarnámskeiði verður til

LV1 – Þróun sumarnámskeiða

LV2 -Þekkingarsafn


Minn styrkur sumarnámskeið – Kynning í Stakkahlíð 5. febrúar

janúar 26, 2010

Haldin verður kynning á samstarfi Háskóla Íslands og Umsjónarfélags einhverfra um þróun sumarnámskeiða fyrir unglinga á einhverfurófinu og þekkingarsafni til stuðnings ýmissa verkefna fyrir samfélag einhverfra.

Kynningin fer fram í salnum “Bratti” við Stakkahlíð, þann 5. febrúar frá kl. 12-15:00.

Dagskráin er svohljóðandi:

12:00 Pistlar og umræður
  • Hvati að stofnun þekkingarhópsins “Minn Styrkur” – Helgi Þór Jónsson, Umsjónarfélagi einhverfra
  • Umgjörð og efnistök námskeiðanna – Guðný Björk Hallgrímsdóttir og Svanborg Guðgeirsdóttir, þroskaþjálfanemar
  • Uppbygging á þekkingarsafni – Arnar Jónsson, Helga Sigurðardóttir og Valentína H. Michelsen, þroskaþjálfanemar

13:00 Sýning á heimildarmyndinni Sólskinsdrengurinn – Einhverfa í nýju ljósi

14:30 Umræður, dagskrárlok

Kynningin er hugsuð jafnt fyrir foreldra, fagfólk og nemendur Menntavísindasviðs, þátttaka ókeypis.

Þægilegast er að leggja við og ganga inn í  Hamar við Háteigsveginn, salurinn Bratti er í því húsi.


Atvinna – Umsjónarmaður sumarnámskeiðanna “Minn Styrkur”

janúar 24, 2010

Laugardaginn 23. janúar auglýsti Umsjónarfélag Einhverfra eftir umsjónarmanni námskeiða fyrir einhverfa unglinga, sem haldin verða næsta sumar.  Umsóknarfrestur er til 31. janúar, auglýsinguna má sjá hér.

Námskeiðin kallast “Minn Styrkur”, enda er markmið þeirra að efla félagsfærni og uppgötva styrkleika einstaklingsins.  Í drögum að námskrá er gert ráð fyrir fjölbreyttri fræðslu fyrir 12-18 ára unglinga, s.s. stuttmyndagerð, heimilisfræði, fræðslu-og leikjahugbúnaði og vettvangsferðum.

Endanleg umgjörð og efnistök námskeiðanna verður kynnt þann 5. febrúar í Stakkahlíð, dagskrá verður birt hér á morgun.  Einnig munum við birta úrdrátt úr könnun meðal foreldra á næstu dögum og hvetjum alla áhugasama að fylgjast með hér á blogginu og mæta á kynningardaginn 5. febrúar.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 31 other followers